Námskeiðslýsing
Markmið
Í lok námskeiðsins eiga þátttendur að
Hafa heildstæða mynd af notkun upplýsingatækni og tölva í skólastarfi og þeim samvirkandi þáttum innan skóla og utan sem einkenna og móta þá menningu og notkunarhefðir sem skapast við innleiðingu þeirra (technology integration).
Hafa þekkingu á hvernig tölvutengd færni og viðhorf nemenda þróast og tölvunotkun þeirra innan skóla og utan.
Hafa þekkingu á möguleikum upplýsingatækni til að efla nám og kennslu.
Geta nýtt nýjustu upplýsingatækni í hugmyndavinnu og til öflunar og úrvinnslu gagna vegna fræðilegra skrifa.
Verða virkir þátttakendur í náms- og fagsamfélagi, áhugasamir um að vinna þróunarstörf á sviði upplýsingatækni, að skoða og greina skóla- og uppeldisstarf með opnum og gagnrýnum huga og að miðla reynslu sinni til annarra.
Inntak / viðfangsefni
Áhrif upplýsingabyltingarinnar á menningu, uppeldi, menntun og skólastarf.
Nemendur, færni þeirra og/eða læsi á upplýsingar, miðla, tölvur og tækni og tölvunotkun innan og utan skóla.
Námskrá og stefnumótun á sviði upplýsingatækni í skólastarfi.
Skilgreiningar og kenningar sem tengjast upplýsingatækni í námi og kennslu.
Innleiðing tölva og upplýsingatækni í skólastarf (technology integration), kennsluhættir, símenntun kennara, hugbúnaður og stafrænt námsefni, félagslegir þættir.
Vinnulag
Lestur og umræður um námskrá og stefnumótun, fræði, nýjar rannsóknir og athuganir á vettvangi. Þátttakendur vinna einir eða í smærri hópum að efnissöfnun og kynningum á efni sem tengist áhugasviði þeirra. Þátttakendur miðla reynslu af notkun upplýsingatækni í námi og kennslu og leitast verður við að byggja upp öflugt náms- og fagsamfélag.
Námsmat
Umræðuframlög (að hluta til unnið í hóp að hluta til einstaklingsvinna), 25%
Efnisleit og kynningar einstaklinga eða áhugahópa (verkefni má að hluta til vinna í hóp en það er ekki skylda), 25%
Verkefni sem byggist á gagnasöfnun (einstaklings- eða hópverkefni), 25%
Heimildaritgerð (einstaklingsverkefni), 25%.
Tengja má síðasttöldu verkefnin tvö í eitt stórt 50% verkefni.
Upplýsingatækni í menntun og skólaþróun
Braut / námsleið / kjörsvið
Upplýsingatækni og miðlun
Tegund námskeiðs (grunnnámskeið, skyldunámskeið, valnámskeið)
Skyldunámskeið
Misseri
Haust?
Stærð námskeiðs í einingum
5 (10 ECTS)
Hámarksfjöldi nemenda
40
Forkröfur
Námskeiðslýsing
Markmið
Í lok námskeiðsins eiga þátttendur að
Inntak / viðfangsefni
Áhrif upplýsingabyltingarinnar á menningu, uppeldi, menntun og skólastarf.
Nemendur, færni þeirra og/eða læsi á upplýsingar, miðla, tölvur og tækni og tölvunotkun innan og utan skóla.
Námskrá og stefnumótun á sviði upplýsingatækni í skólastarfi.
Skilgreiningar og kenningar sem tengjast upplýsingatækni í námi og kennslu.
Innleiðing tölva og upplýsingatækni í skólastarf (technology integration), kennsluhættir, símenntun kennara, hugbúnaður og stafrænt námsefni, félagslegir þættir.
Vinnulag
Lestur og umræður um námskrá og stefnumótun, fræði, nýjar rannsóknir og athuganir á vettvangi. Þátttakendur vinna einir eða í smærri hópum að efnissöfnun og kynningum á efni sem tengist áhugasviði þeirra. Þátttakendur miðla reynslu af notkun upplýsingatækni í námi og kennslu og leitast verður við að byggja upp öflugt náms- og fagsamfélag.
Námsmat
- Umræðuframlög (að hluta til unnið í hóp að hluta til einstaklingsvinna), 25%
- Efnisleit og kynningar einstaklinga eða áhugahópa (verkefni má að hluta til vinna í hóp en það er ekki skylda), 25%
- Verkefni sem byggist á gagnasöfnun (einstaklings- eða hópverkefni), 25%
- Heimildaritgerð (einstaklingsverkefni), 25%.
Tengja má síðasttöldu verkefnin tvö í eitt stórt 50% verkefni.Lesefni [Ef hægt er.]
Útdráttur námskeiðslýsingar á ensku.